16.12.2009 13:05:10 / bijo
Já - 15 blogg átti ég á árinu!
Það er meira en ég hélt.
Það eru ennþá nokkrar risaeðlur þarna úti sem að blogga... en Facebook virðist ætla að nægja flestum þeim sem þurfa að tjá sig... bloggið er alveg að deyja hjá flestum..!
Mig langar ekkert að hætta. Mér finnst ég svo fyndin og mér finnst að þið ættuð að fá að njóta þess!
»
30.10.2009 10:18:46 / bijo
Mér líður alltaf eins og fórnarlambi eineltis þegar ég er á bókasöfnum, allir að hvíslast á og eitthvað... og ég fæ ekkert að vita.
»
28.09.2009 15:04:46 / bijo
...er SKJALDBAKA HEIMILANNA
»
26.08.2009 14:14:33 / bijo

.
..ég væri líka alltaf mjúk og mollý ef ég þyrfti að vinna á Alþingi.
Er -svona í alvörunni - hægt að vera edrú að hlusta á þessa skápa?
Eitt flippstig fyrir Sigmund.
»
17.07.2009 12:30:26 / bijo
Hvað er þetta ESB og má ég þá ekki borða lunda á þjóðhátíðinni?
Hver getur útskýrt þetta á mannamáli?
»
18.06.2009 09:58:37 / bijo
Dúddinn sem að rústaði húsinu sínu með beltagröfu um helgina hefur verið mikið á milli tannanna á fólki!
Sumir vilja að hann fái fálkaorðuna, maður ársins og ég veit ekki hvað og hvað! Aðrir eru ekki eins ánægðir með kappa... fólk beri ábyrgð á skuldum sínum og bla bla bla...

Burt séð frá öllu - djös kikk hefur þetta líklegast verið! :Þ
»
03.06.2009 20:31:47 / bijo
Þessar tvær fréttir eru í röð inná mbl.is:
Fyrri fréttin kemur skv. upplýsingum frá Fjármálaráðuneytinu
Seinni fréttin kemur frá Jóhönnu Sig skv. gögnum frá Seðlabankanum.
Þetta er bara allt spurning hvernig maður lítur á málið sjáðu til!
»
14.05.2009 10:12:21 / bijo
Ég er búin að velta mikið fyrir mér hvert ég á að ferðast í sumar. Allt er svo dýrt, að ferðast innanlands er náttla djók, gisting, bensín og allur pakkinn - svo það er off. Get gleymt því að ferðast erlendis með gengið svona. Svo ég hef tekið ákvörðun um að eyða sumarfríinu mínu í að fara í Andlegt ferðalag - bara heima í stofu og kostar ekki krónu.
Vill einhver koma með mér?
»
06.05.2009 21:20:58 / bijo
Ég er í massívri bloggvistarkreppu.
Eins setninga-statusinn á fjésinu fullnægir ritþörf minni fullkomlega þessa dagana!
Mig langar samt ekki að hætta.
»
19.04.2009 11:15:04 / bijo
Nei mundi lykilorðið. Týndi bloggskónum.
Er að pæla í hvað ég á að kjósa, ef að Friður 2000 lítur vel út, hvað segir það um hina?
Eða meikar Ástþór sens?
Ég er með flensuna endalausu - sem á endanum drepur mig líklegast.
»
08.03.2009 21:33:12 / bijo

Vá - djók! Það er bara þvílíkt flókið að fara í Sorpu ef að maður flokkar ekki ruslið heima hjá sér áður! Ég var þess heiðurs aðnjótandi að fá að fara 6 ferðir í Sorpu þessa helgina *Kaldhæðni* og þetta er bara verkefni fyrir Sameindalíffræðing! það var sem sagt ekkert að virka hjá mér að vera með málingu , bækur, og poka í sama kassanum!! Ó nei, þetta er allt spurning um spilliefni, málma, endurnýtanlegt og óendurnýtanlegt! Gler fer sér, pappi, sér, pokar sér, föt í Rauða krossinn í einn, og húsmundir til að gefa í annan! Ég sem sagt fór í 16 gáma svona 6 sinnum um helgina! Og það er ekkert meira hressandi en að ganga um Sorpu, haldandi á ónýtri ferðatösku og reyna að spurja íslenskan útlending hvort taskan sé endurnýtanleg eða ekki...!
»
19.02.2009 21:06:26 / bijo
Ég ætla að hætta að skammast mín. Viðurkenni það hér með að ég er engin dýramanneskja. Ég rétt þoli fólk og hvað á ég þá að þola loðið drasl sem að sleikir á sér rassgatið, labbar á fjórum fótum og getur engan vegin tjáð sig. Ég fæ ekki þessa "aaawwwww" tilfinningu þegar ég sé lítinn hvolp, finn bara fyrir létti að ég þurfi ekki að umgangast hann. Kisur eru síðan líka ekker flott fyrirbæri, bara wannabe ljón. Kisur eru öryrkjar kattarstéttarinnar.Sumir vilja meina að þetta beri vott um mannvonsku. Ég ætla ekkert að neita því...Svo vil ég bara nefna til að forðast misskilning að þegar við Bibba, Smartdís og Fía tökum Kanakvöld, þá erum við ekki á Kókaínflippi - þó að það komi Ásar við sögu á þeim kvöldum.
»
03.02.2009 15:25:52 / bijo
»
23.01.2009 22:33:13 / bijo
...að það væri eitt hættulegasta starfið að vera slökkvuliðsmaður, flugmaður eða vinna á olíuborpalli í Norðursjó! En það hefur komið á daginn að það er hreinlega lífshættulegt að vera í pólitík á Íslandi, og ennþá hættulegra að vera Sjálfstæðismaður í pólitík.
»
21.01.2009 13:42:38 / bijo

...af hverju í lifandi skelfingar óskupunum eru þeir ekki með sundgleraugu á sér? - Well sumir eru með það reyndar - en sæll..
Ég er frekar á móti ríkisstjórninni þessa dagana og væri alveg til í að sýna stuðning í verki, en aldrei í lífinu myndi ég taka þátt í þessu stjórnleysi sem að á sér stað núna. Ég bara get ekki séð að það lagi eitthvað að kasta skyri í lögregluna, brjóta rúður í Alþingi eða kveikja í jólatrjám!
XOXO
-B
»
Síður:
1 2 3 ...
30